Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1412, 151. löggjafarþing 280. mál: umferðarlög (umframlosunargjald og einföldun regluverks).
Lög nr. 39 17. maí 2021.
Eftirlitsstofnun EFTA er heimilt að leggja umframlosunargjald á framleiðanda ökutækja þegar vegið meðaltal útblásturs skaðlegra lofttegunda nýskráðra ökutækja framleiðandans á Evrópska efnahagssvæðinu er hærra en viðmið sem kveðið er á um í reglugerð sem ráðherra setur. Í reglugerðinni skal kveðið nánar á um hvernig og í hvaða tilvikum slíkt gjald skal lagt á.
Ráðherra setur nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmdir, viðburði eða aðrar aðstæður á eða við veg þar sem umferð kann að vera raskað þannig að hætta stafi af, m.a. um gerð öryggisáætlunar og ábyrgð veghaldara og verktaka við að tryggja öryggi á verkstað.
Þingskjal 1412, 151. löggjafarþing 280. mál: umferðarlög (umframlosunargjald og einföldun regluverks).
Lög nr. 39 17. maí 2021.
Lög um breytingu á umferðarlögum, nr. 77/2019 (umframlosunargjald og einföldun regluverks).
1. gr.
Í stað skammstöfunarinnar „sm“ í 8. tölul. og a-lið 28. tölul. 1. mgr. 3. gr., 2. mgr. 40. gr. og 2. og 3. mgr. 77. gr. laganna kemur: cm.2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:- Í stað „10 km“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 15 km.
- Í stað orðsins „Vélknúnum“ í 2. málsl. 2. mgr. kemur: Skráningarskyldum.
3. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 10. gr. laganna:- Við 1. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Veghaldara er enn fremur heimilt að kveða á um frekari undanþágur frá banni við umferð í samræmi við 1. og 4. mgr. 84. gr.
- 2. mgr. orðast svo:
4. gr.
Í stað orðsins „vélknúið“ í 1. málsl. 3. mgr. 28. gr. laganna kemur: skráningarskylt.5. gr.
E-liður 11. mgr. 58. gr. laganna orðast svo: akstursmat skv. 59. gr., námsheimild skv. 67. gr. og leyfi leiðbeinanda skv. 68. gr., og.6. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 63. gr. laganna:- Við 1. mgr. bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ákvörðun um afturköllun ökuréttinda þess sem ekki uppfyllir lengur skilyrði b-liðar 2. mgr. 58. gr. skal byggð á læknisfræðilegu mati á aksturshæfni. Við ákvörðun um afturköllun ökuréttinda skal fylgja ákvæðum stjórnsýslulaga.
- 2. mgr. orðast svo:
- 3. mgr. orðast svo:
- Í stað orðanna „Nú fullnægir handhafi ökuréttinda ekki skilyrðum b-liðar 2. mgr. 58. gr. að mati trúnaðarlæknis Samgöngustofu“ í 4. mgr. kemur: Nú fullnægir handhafi ökuréttinda að mati læknis ekki skilyrðum b-liðar 2. mgr. 58. gr., að undangenginni læknisrannsókn skv. 1. eða 2. mgr.
- Orðin „skipun og hæfi trúnaðarlæknis Samgöngustofu“ í 5. mgr. falla brott.
- 9. mgr. orðast svo:
7. gr.
Orðið „lögreglustjóra“ í 1. málsl. 4. mgr. 67. gr. og 1. málsl. 1. mgr. 68. gr. laganna fellur brott.8. gr.
Við 69. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Eftirlitsstofnun EFTA er heimilt að leggja umframlosunargjald á framleiðanda ökutækja þegar vegið meðaltal útblásturs skaðlegra lofttegunda nýskráðra ökutækja framleiðandans á Evrópska efnahagssvæðinu er hærra en viðmið sem kveðið er á um í reglugerð sem ráðherra setur. Í reglugerðinni skal kveðið nánar á um hvernig og í hvaða tilvikum slíkt gjald skal lagt á.
9. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 72. gr. laganna:- Við 2. málsl. bætist: sem gerður er fyrir meira en 750 kg heildarþyngd, svo og hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagn óháð heildarþyngd.
- Við bætast tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ráðherra getur þó í reglugerð kveðið á um skráningarskyldu eftirvagns vélknúins ökutækis sem gerður er fyrir 750 kg heildarþyngd eða minna. Undanþegin skráningarskyldu eru létt bifhjól í flokki I.
10. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. mgr. 82. gr. laganna:- Í stað orðsins „veghaldara“ kemur: Vegagerðarinnar.
- Við bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Slíka undanþágu má binda viðeigandi skilyrðum, t.d. um að sá sem óskar eftir slíkri undanþágu afli samþykkis annarra veghaldara eftir því sem við á.
11. gr.
Við 5. mgr. 86. gr. laganna bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þá getur ráðherra heimilað ríkisaðila að sjá um innheimtu gjalds fyrir notkun stöðureita sem viðkomandi ríkisaðili hefur umsjón með.12. gr.
3. mgr. 89. gr. laganna orðast svo:Ráðherra setur nánari ákvæði í reglugerð um framkvæmdir, viðburði eða aðrar aðstæður á eða við veg þar sem umferð kann að vera raskað þannig að hætta stafi af, m.a. um gerð öryggisáætlunar og ábyrgð veghaldara og verktaka við að tryggja öryggi á verkstað.
13. gr.
Í stað tilvísananna „39.–41. gr., 42. gr.“ í 1. mgr. 94. gr. laganna kemur: 39.–42. gr., 1.–4. mgr. 43. gr.14. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 95. gr. laganna:- Á eftir tilvísuninni „48. gr.“ í 1. málsl. kemur: 6. mgr. 49. gr.
- Í stað orðsins „sæta“ í 2. málsl. kemur: varða.
- Á eftir orðinu „gegn“ í 2. málsl. kemur: 1.–5. mgr. og 7. mgr.
15. gr.
Orðin „allt að 500.000 kr.“ í 97. gr. laganna falla brott.16. gr.
Á eftir orðinu „Eigandi“ í 2. málsl. 1. mgr. 110. gr. laganna kemur: eða umráðamaður.17. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 11. maí 2021.